OPIÐ HÚS Í MS-SETRINU – JÓLABASARINN Laugardaginn 17. nóvember kl. 13 – 16 verður opið hús í MS-Setrinu að Sléttuvegi 5. Fallegir munir sem unnir eru á vinnustofunni verða til sölu. Boðið er upp á súkkulaði og rjómavöfflur gegn vægu verði. Allur ágóði rennur til félagsstarfsins.