30.05.2019 Sumarhátíð MS-félagsins var að venju haldin í sól og sumaryl á Sléttuveginum í tilefni Alþjóðadags MS. Rauðhetta, úlfurinn og grísinn úr leikhópnum Lottu mættu á svæðið og léku leikritið um Rauðhettu og úlfinn. Í kjölfarið tróð Jón Sigurðsson, betur þekktur sem Jón 500 kall úr Idolinu, upp og spilaði á gítarinn sinn og söng mörg mjög skemmtileg lög sem flestir þekktu. Boðið upp á andlitsmálun og …
Alþjóðadagur MS: Hin ósýnilegu einkenni MS – Munið sumarhátíðina 29. maí
27.05.2019 Alþjóðadagur MS er 30. maí og er honum fagnað með sumarhátíð MS-félagsins 29. maí. Yfirskrift dagsins er Hin ósýnilegu einkenni MS. MS er langvinnur bólgusjúkdómur í miðtaugakerfinu (heila og mænu) þar sem skilaboð um hreyfingu, tal eða hugsun truflast og ná illa eða ekki fram til viðeigandi líkamshluta og einkenni sjúkdómsins koma fram. Að meðaltali greinist ein manneskja á tveggja vikna fresti með MS …
Nýr félagsráðgjafi MS-félagsins
15.05.2019 Íris Eik Ólafsdóttir, félagsráðgjafi, hefur verið ráðin til starfa fyrir félagið. Hún mun sinna félagsráðgjöf, fjölskyldu- og parameðferð fyrir félagsmenn MS-félagsins. Íris Eik útskrifaðist sem félagsráðgjafi frá Háskóla Íslands árið 2003 og sem fjölskyldufræðingur frá endurmenntun Háskóla Íslands árið 2018. Hún er einnig með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í réttarfélagsráðgjöf frá árinu 2010 og framhaldsmenntun í opinberri stjórnsýslu frá …
Vinningshafi og lausn krossgátu
11.05.2019 Dregið hefur verið úr innsendum réttum lausnum krossgátu í 1. tbl. MS-blaðsins 2019. Lausnarorðið er: “HRÓSA SKAL HAPPI ÞÁ HÖND GEYMIR”. Vinningshafi er Guðný Björg Bjarnadóttir og óskum við henni til hamingju með vinninginn sem ekki er af verri endanum: Tölusett plakat af mynd Eddu Heiðrúnar Backman, „Tveir þrestir“. Hér má sjá lausn krossgátunnar BB
ÖBI: Námssjóður Sigríðar Jónsdóttur – opið fyrir umsóknir
11.05.2019 Stjórn Námssjóðs Sigríðar Jónsdóttur og ÖBÍ auglýsa eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Styrkir eru veittir til: öryrkja vegna hagnýts náms, bóklegs eða verklegs, svo og til náms í hvers konar listgreinum. einstaklinga sem vilja sérhæfa sig til starfa í þágu fólks með þroskahömlun. Rafrænt umsóknareyðublað. Einnig er hægt að nálgast eyðublöð á skrifstofu Öryrkjabandalags Íslands, Sigtúni 42, Reykjavík. …
Námskeið fyrir maka fólks með MS 13. maí
07.05.2019 Fyrirhugað er námskeið fyrir maka fólks með MS ef næg þátttaka næst. TÍMI: 13. maí (mánud.) kl. 17:00 – 20:00 16. maí (fimmtud.) kl. 17:00 – 20:00 20. maí (mánud.) kl. 17:00 – 20:00 STAÐUR: Sléttuvegur 5, 103 Reykjavík. VERÐ: 5.000 kr. Þeir sem eru búsettir utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um ferðastyrk. Boðið er upp á ávexti og kaffi. LÝSING: Námskeiðið er fyrir …
Alþjóðadagur MS 2018
Sólin skein blítt fyrir okkur á alþjóðdegi MS í gær. Alþjóðadeginum er ætlað að vekja athygli samfélagsins á MS-sjúkdómnum og þeim áskorunum sem fólk með MS og aðstandendur þeirra geta mætt. “Færumst nær” er yfirskrift alþjóðadagsins í ár, en hann er tileinkaður rannsóknum á MS-sjúkdómnum. Mættir voru um 150 manns að njóta dagsins með okkur, en dagskráin var ekki af verri endanum. Björg Ásta Þórðardóttir, formaður félagsins, setti hátíðina og bauð Hr. Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands velkominn. Guðni hélt stutta ræðu áður en hann gekk á milli og blandaði geði við gesti og gangandi.
Óvænt heimsókn frá tölvudeild Arionbanka
Við fengum afar skemmtilega heimsókn á skrifstofuna í dag frá tveim starfsmönnum í tölvudeild Arionbanka, sem komu færandi hendi með styrk uppá ca 120.000 krónur sem safnast höfðu á leikjakvöldi starfsfólksins.
Alþjóðadagur MS
Alþjóðadagur MS verður haldinn hátíðlegur í tíunda sinn miðvikdaginn 30. maí nk. í húsnæði MS-félagsins.
Aðalfundur MS-félagsins 2018
Í gær var aðalfundur MS-félagsins haldinn í húsnæði félagsins að Sléttuvegi 5. Mættir voru um 30 félagsmenn en fundarstjórn var í höndum Berglindar Guðmundsdóttur, fyrrverandi formanni félagsins.










